eID Hub
Örugg og skilvirk auðkenning með rafrænum skilríkjum sem gerir aðgang að þjónustu á netinu einfaldan og þægilegan.
Signicat býður upp á tengingu við yfir 35 tegundir rafrænna skilríkja (eID) víðs vegar um Evrópu. Með rafrænum skilríkjum geturðu staðfest að fólk sé það sem það segist vera á netinu, án þess að það komi niður á upplifun notenda. Þau má nota til að staðfesta auðkenni, auðkenna notendur við innskráningu og undirrita skjöl rafrænt.
Rafræn skilríki: Traust rafræn auðkenning víðs vegar um Evrópu
Rafræn skilríki, á borð við MitID og BankID, eru gefin út á landsvísu eða af bönkum og njóta trausts stjórnvalda. Þau eru mikið notuð víðs vegar um Evrópu til að veita öruggan aðgang að þjónustu opinberra aðila og einkafyrirtækja.
Með einni tengingu við Signicat færðu aðgang að 35 evrópskum rafrænum skilríkjalausnum. Þannig geturðu boðið upp á örugga innskráningu, staðfest hver viðskiptavinurinn er og gert honum kleift að undirrita rafrænt og samþykkja greiðslur með auðkenningaraðferðum sem hann þekkir og treystir.
Evrópsk stafræn auðkennisveski: Næsta kynslóð rafrænna auðkenna
Evrópsk stafræn auðkennisveski (EUDI-veski) gera notendum kleift að staðfesta hverjir þeir eru og deila staðfestum upplýsingum, svo sem um aldur og ríkisfang, þvert á landamæri. Þau veita aukna persónuvernd og öryggi og eiga að virka saman í öllum ríkjum ESB.
Fyrirtæki í tilteknum eftirlitsskyldum atvinnugreinum innan Evrópusambandsins verða að taka við EUDI-veskjum fyrir árslok 2027, einkum við sterka auðkenningu viðskiptavina (SCA).
Á Íslandi tekur sambærileg skylda gildi ári síðar, undir lok árs 2028.
Með Signicat geturðu tekið við öllum EUDI-veskjum samhliða traustum rafrænum skilríkjum, án þess að þurfa að setja upp sérstaka tengingu fyrir hvert land.
Heildstæð lausn fyrir rafræna auðkenningu
-
Heimsins mesta úrval rafrænna skilríkja
Fáðu aðgang að yfir 36 rafrænum skilríkjalausnum með einni einfaldri tengingu – fyrir hnökralausa staðfestingu á auðkenni og örugga innskráningu.
-
Rafræn skilríki víðs vegar um Evrópu
Þróað fyrir auðkenningu þvert á landamæri með fullum stuðningi við rafræn skilríki, lykilatriði fyrir fyrirtæki sem starfa í mörgum löndum og þurfa að fylgja ólíku regluverki.
-
Vex með þér til framtíðar
Í samræmi við evrópska regluverkið um rafræna auðkenningu (eIDAS 2.0) og væntanleg verkefni um innleiðingu evrópskra stafrænna auðkennisveskja.
-
Örugg regluvarsla
Lausnir Signicat eru í fullu samræmi við eIDAS og hjálpa fyrirtækjum að uppfylla kröfur um varnir gegn peningaþvætti (AML), áreiðanleikakönnun viðskiptavina (KYC) og persónuvernd (GDPR). Þannig er tryggt að auðkennisupplýsingar viðskiptavina séu meðhöndlaðar á öruggan og lögmætan hátt.
-
Traust sérþekking
Með yfir tveggja áratuga reynslu af rafrænni auðkenningu er Signicat brautryðjandi á sviðinu og tekur þátt í að móta reglur og staðla Evrópusambandsins um rafræna auðkenningu.
-
Hannað með þarfir forritara í huga
Forritaskil (API) með ítarlegum leiðbeiningum, þróunarsett (SDK) og prófunarumhverfi auðvelda samþættingu og gera vinnu forritara einfaldari.
–Signicat leysti fyrir okkur bæði tæknilegar og lagalegar áskoranir við auðkenningu
Rafræn skilríki fyrir nýskráningu og auðkenningu
Tengstu eID Hub og byrjaðu að nýta rafræn skilríki víðs vegar um Evrópu.
-
Swedish BankID
-
Norwegian BankID -
MitID -
Mobiilivarmenne -
Finnish Trust Network (FTN)
-
Freja eID -
Local IdP
-
Samleikin -
Auðkenni
-
Neuer Personalausweis -
SPID
-
YIVI -
iDIN
-
itsme -
.beID -
eHerkenning -
Smart-ID
-
FranceConnect -
Estonian ID (EstEID) -
Smart-ID
-
SPID
-
SPID -
MojeID Poland
Vistaðu auðkenningarfærslur sjálfkrafa fyrir úttektir og úrlausn ágreinings.
Í ýmsum atvinnugreinum er gerð krafa um áreiðanleg gögn sem sýna fram á að rafræn skilríki hafi verið notuð við nýskráningu, samþykki greiðslu eða innskráningu. Slík gögn geta einnig stutt við úrlausn ágreinings.
Með Authentication Vault geturðu tímastimplað og varðveitt auðkenningarfærslur sjálfkrafa og á öruggan hátt í samræmi við persónuverndarreglugerðina (GDPR). Færslurnar eru varðveittar í lausn Signicat, Digital Evidence Management. Allt með einum smelli.
eID Fraud Detector
eID Fraud Detector metur hættu á svikum í hvert sinn sem notandi auðkennir sig með rafrænum skilríkjum. Með því að greina upplýsingar um tæki, staðsetningu og fyrri auðkenningar hjálpar eiginleikinn þér að greina frávik og laga öryggisráðstafanir að áhættunni hverju sinni. Hann er nú í boði fyrir MitID í Danmörku og BankID í Svíþjóð.
Hvernig nýta má rafræna auðkenningu
-
- Rafræn skilríki fyrir örugga innskráningu og auðkenningu notenda
- Aðgangur að opinberri þjónustu
-
- Stofnun bankareikninga
- Örugg bankaviðskipti
-
- Undirritun samninga
- Lagaleg skjöl
-
- Auðkenning í ráðningarferlinu
- Öruggur aðgangur að opinberum skjölum með rafrænum skilríkjum
-
- Staðfesting á aldri til að fá aðgang að netleikjum eða veðmálasíðum
- Staðfesting á aldri við netkaup á aldurstakmörkuðum vörum, svo sem áfengi eða tóbaki
-
- Auðkenning við leigu á rafhlaupahjólum, reiðhjólum eða bílum.
- Örugg auðkenning við afhendingu farms sem tryggir að aðeins aðilar með tilskilda heimild geti nálgast verðmætar sendingar.
- Notkun rafrænna skilríkja til að veita skjótan og öruggan aðgang að samgönguþjónustu, svo sem almenningssamgöngum og samakstri.
-
Dragðu úr svikum og auðkenndu notendur á einfaldan hátt. Uppfylltu kröfur regluverksins og veittu viðskiptavinum greiðan aðgang að bankaþjónustu á netinu.
-
Skráðu og auðkenndu sjúklinga á öruggan hátt og uppfylltu um leið strangar kröfur um persónuvernd.
-
Fækkaðu þeim sem hætta við skráningu eða kaup með því að bjóða upp á einfaldar og traustar lausnir með rafrænum skilríkjum.
-
Gerðu borgurum kleift að skrá sig inn í rafræna þjónustu hins opinbera með rafrænum skilríkjum síns lands. Þar geta þeir meðal annars sótt um ýmis leyfi, nýtt sér skattaþjónustu, skoðað stöðu lífeyrisréttinda og jafnvel kosið á netinu.
-
Staðfestu auðkenni leikmanna á skjótan og áreiðanlegan hátt í samræmi við viðmið á hverju svæði.
Svör við öllum þínum spurningum
-
Signicat eID Hub er heildstæð lausn sem veitir fyrirtækinu þínu aðgang að yfir 36 rafrænum auðkenningaraðferðum með einni einfaldri tengingu.
-
Fyrirtæki í banka- og tryggingastarfsemi, heilbrigðisþjónustu, netleikjum og fjárhættuspilum og samgöngum nýta lausnina okkar til að einfalda auðkenningu og vinnu við regluvörslu.
-
Já, Signicat eID Hub er í fullu samræmi við eIDAS og hjálpar fyrirtækjum að uppfylla kröfur evrópska regluverksins um rafræna auðkenningu.
-
Signicat eID Hub sameinar allt sem þú þarft fyrir rafræn skilríki á einum stað. Það dregur úr tæknilegum flækjum og gerir þér kleift að einbeita þér að upplifun notenda.
-
Með einni tengingu við Signicat eID Hub geturðu nýtt rafræn skilríki í mörgum Evrópulöndum, án þess að þurfa að tengjast mörgum aðskildum lausnum.
-
Signicat eID Hub hjálpar til við að koma í veg fyrir svik með tengingu við traust og sannreynd rafræn skilríki. Þannig er tryggt að aðeins réttmætir notendur fái aðgang að þjónustunni þinni.
Þegar ókunnugir keyra bílinn þinn – rafræn auðkenning í deilibílaþjónustu
Sjáðu hvernig norska deilibílafyrirtækið Hyre leysti áskoranir við auðkenningu og færði út starfsemi sína til annarra Norðurlanda.
Auðkenningarlausn Signicat einfaldaði flókið innskráningarferli og gerði Hyre kleift að hefja útrás. Það tók FIMM daga að leysa málið, ekki fimm mánuði!