Visa
Einfaldari rafræn nýskráning fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki
Visa og Signicat vinna að því að gera allt ferlið við skráningu lítilla og meðalstórra fyrirtækja í viðskipti við fjármálastofnanir sjálfvirkt. Þannig geta fjármálastofnanir unnið skilvirkar og boðið fyrirtækjum að ljúka öllu ferlinu á einum stað.
Áskorunin
Lítil og meðalstór fyrirtæki gera í auknum mæli ráð fyrir að geta lokið öllu umsóknarferlinu á netinu þegar þau stofna reikning eða sækja um lán hjá fjármálastofnun. Fyrir margar fjármálastofnanir getur þó verið krefjandi að mæta eftirspurn eftir fyrirtækjalánum og væntingum umsækjenda um nútímalega þjónustu, samhliða því að uppfylla kröfur laga og reglna.
Hjá fjármálastofnunum hefur lengi tíðkast að vinna handvirkt með pappírsgögn þegar reikningar eru stofnaðir og nýir viðskiptavinir hefja viðskipti. Slíkir ferlar geta verið tímafrekir og kostað bæði starfsfólk og umsækjendur mikla vinnu. Ef rafrænar lausnir vantar og samhæfingu er ábótavant berast skjöl og upplýsingar vegna áreiðanleikakannana á viðskiptavinum (KYC) eftir ólíkum leiðum. Þá verður erfiðara að halda yfirsýn yfir gögnin og stýra útlánaáhættu með markvissum hætti.
Handvirkt umsóknarferli veldur einnig óþarfa fyrirhöfn fyrir lítil og meðalstór fyrirtæki. Umsækjendur þurfa að mæta í útibú til að fylla út eyðublöð og bíða lengur eftir niðurstöðu lánsumsóknar. Með aukinni rafrænni þjónustu geta fjármálastofnanir bætt upplifun viðskiptavina og aukið líkurnar á áframhaldandi viðskiptum. Jafnframt geta þær lækkað kostnað við að afla nýrra viðskiptavina og stuðlað að vexti til skemmri og lengri tíma.
Lausnin
Visa hefur tekið höndum saman við Signicat, einn af leiðandi veitendum rafrænna auðkennislausna í Evrópu, til að auðvelda litlum og meðalstórum fyrirtækjum að hefja viðskipti við fjármálastofnanir og einfalda vinnuna beggja vegna. RiskFlow frá Signicat veitir fjármálastofnunum aðgang að gögnum og gerir þeim kleift að sjálfvirknivæða ferlið þegar lítil og meðalstór fyrirtæki sækja um lán og hefja viðskipti. Þannig verður ferlið einfaldara og um leið dregur úr hættu á svikum. Með einni API-tengingu við RiskFlow fá fjármálastofnanir aðgang að upplýsingum úr yfir 200 gagnaveitum. En þær nýtast við áreiðanleikakannanir á viðskiptavinum (KYC) og fyrirtækjum (KYB), auk aðgerða gegn peningaþvætti (AML).
Lausnin er sveigjanleg og hægt er að tengja hana við þau viðmót og umsóknarferli sem fjármálastofnanir nota nú þegar. Þær geta því sérsniðið verkferla, skipt um þjónustuveitendur eða breytt því hvernig nýir viðskiptavinir eru skráðir í viðskipti, án þess að þurfa að forrita.Fyrirtæki geta lokið umsókninni alfarið á netinu og biðin eftir niðurstöðu styttist úr nokkrum dögum í örfáar mínútur. Það er gert án þess að slaka á öryggi eða auka útlánaáhættu fjármálastofnunarinnar. Aðgangur að fjölbreyttum gagnaveitum og þjónustuveitendum í gegnum Signicat gerir fjármálastofnunum kleift að framkvæma ítarlegt áhættumat og kanna hvort kröfur laga og reglna séu uppfylltar áður en þær bjóða fyrirtækjum lán. Þannig geta þær sannreynt að umsækjendur séu þeir sem þeir segjast vera, óháð landi eða markaði.
„Aðferðir við svik eru sífellt að breytast og úreltir verkferlar við áhættustýringu og regluvörslu ná ekki að fylgja þróuninni. Svikum þar sem gervigreind er beitt fer fjölgandi og því er brýnt að fjármálastofnanir hafi réttu lausnirnar til að bregðast við. Signicat er í einstakri stöðu til að hjálpa þeim að þróa stefnu sína í áhættustýringu og regluvörslu í takt við breytingar í umhverfinu.“
Riten Gohil, sérfræðingur í stafrænni þróun á sviði svikavarna og auðkenningar hjá Signicat.
Image Source: Pexels
Árangurinn
Visa og Signicat vinna að því að gera allt ferlið við nýskráningu lítilla og meðalstórra fyrirtækja sjálfvirkt. Þannig geta fjármálastofnanir unnið skilvirkar og sinnt öllu ferlinu á einum stað.
- 80% sjálfvirkni í ferlum við skráningu nýrra viðskiptavina
- Allt að 50% lækkun á tíðni svika hjá mörgum viðskiptavinum
- Allt að 40% aukning á hlutfalli umsækjenda sem tekst að staðfesta auðkenni hjá