Getur þú treyst því að viðskiptavinir þínir séu þeir sem þeir segjast vera?
Þú þarft algjöra vissu, en ósveigjanlegar öryggishindranir valda því að allt að 68% notenda hætta við nýskráningu.
Að finna réttu samsetningu vegabréfa, rafrænna skilríkja og lífkenna skiptir sköpum, en það á ekki að standa í vegi fyrir vexti rekstursins. Öflugt öryggi þarf ekki að koma niður á góðri notendaupplifun. Sæktu skýrsluna til að komast að raunverulegum ástæðum þess að notendur hætta við, og lærðu að að byggja upp hraðvirkt nýskráningarferli sem uppfyllir kröfur regluverksins.
Kynntu þér öll lykilatriðin í skýrslunni The Battle to Onboard
Dragðu úr brottfalli í nýskráningarferlinu...
68% hugsanlegra viðskiptavina hætta við nýskráningu á netinu sökum slæmrar notendaupplifunar, sem rekja má til óhóflegra handvirkra skrefa, flókinna ferla og ruglingslegrar hönnunar (UX).
... með lipru nýskráningarferli á netinu sem uppfyllir kröfur um áreiðanleikakönnun (KYC) og aðgerðir gegn peningaþvætti (AML).
Einfaldaðu nýskráningu á öllum stafrænum rásum og milli landa, og sjáðu fleiri notendur klára ferlið.
Yfirlit yfir helstu niðurstöður
-
Nýskráningarferlið er orðið stærri hindrun
68% neytenda hættu við umsókn, samanborið við 63% árið 2020.
-
Háar væntingar skapa kröfuharðari viðskiptavini
Brottfall er mest á Norðurlöndunum, þrátt fyrir víðtæka notkun rafrænna skilríkja.
-
Persónuvernd vegur þungt
92% neytenda hafa áhyggjur af því hvernig persónuupplýsingar þeirra eru verndaðar.
Aðferðir við auðkenningu
Auðkenning snýst um að afla sönnunargagna um hver einstaklingur er í raun og veru. Signicat býður upp á stafrænar auðkenningarleiðir sem gera þetta mögulegt hvar sem er í heiminum, án handvirkrar íhlutunar.
Lausnirnar okkar virka eins og à la carte matseðill. Veldu þær aðferðir við auðkenningu sem passa við þínar öryggiskröfur:
-
Gerðu viðskiptavinum þínum kleift að staðfesta auðkenni sitt á einfaldan hátt með innlendum eða opinberum rafrænum skilríkjum, á borð við BankID eða MitID.
Með þessum öruggu auðkenningarleiðum getur þú tryggt öflugar varnir gegn svikum og aukið traust, á sama tíma og viðskiptavinir fá einfalt og þægilegt nýskráningarferli.
-
Skannaðu alþjóðleg skilríki á öruggan hátt með myndbandsbundinni staðfestingu og fáðu staðfest auðkennisgögn í auðkennisstaðfestingarferlinu.
-
Berðu saman og vaktaðu viðskiptavinagögn gagnvart leiðandi opinberum og viðskiptalegum gagnagrunnum, hvort sem um er að ræða einstaklinga eða fyrirtæki.
-
Áreiðanleikakönnun lýkur ekki við nýskráningu. Vaktaðu breytingar á auðkennisgögnum einstaklings yfir tíma.
Svona virkar það
Búðu til öruggt, skilvirkt og regluvörslusamhæft nýskráningarferli sem hjálpar fleiri notendum að klára ferlið, á sama tíma og áhættusamir notendur eru greindir frá í rauntíma:
1. Staðfestu auðkenni með rafrænum skilríkjum og skönnun skilríkja.
2. Síaðu frá óhæfa notendur með AML-skimun.
3. Auðgaðu notendagögn með tengdum gagnaveitum.
4. Bjóddu nýja viðskiptavini velkomna!
Okkar nálgun á regluvörslu
Hjá Signicat snýst regluvarsla ekki bara um að haka í réttu reitina. Hún er tækifæri til að byggja upp traust, auka skilvirkni og skapa forsendur fyrir vexti. Lausnirnar okkar eru sérsniðnar að einstökum kröfum evrópsks regluverks og hjálpa þér að draga úr flækjustigi svo þú getir einbeitt þér að vexti rekstursins.
Með áratuga reynslu af því að styðja fyrirtæki eins og þitt skiljum við regluverkið og bjóðum sérsniðnar lausnir sem laga sig að þinni atvinnugrein, lögsögu og viðskiptalíkani.