Skip to main content

Evrópska stafræna auðkennisveskið: Ítarleg handbók fyrir fyrirtæki

Þar sem Evrópusambandið stefnir að fullri innleiðingu á Evrópska staffræna auðkennisveskinu (EUDI-wallet) verða fyrirtæki þvert á atvinnugreinar að búa sig undir stafræna umbreytingu á því hvernig sannprófun auðkennis, rafræn nýskráning viðskiptavina og rafrænar undirskriftir fara fram.

Þessi handbók útskýrir hvaða þýðingu staffræna auðkennisveskið hefur fyrir fyrirtæki, hvaða skyldur eru að mótast og hvernig fyrirtæki geta undirbúið ferla sína fyrir rafræna nýskráningu, áreiðanleikakannanir (KYC/KYB), auðkenningu og undirskriftir til að styðja við samskipti í gegnum veskið.

Illustration of a smartphone displaying an EUDI Wallet app containing digital credentials and services including a national eID, university diploma, driving license, payment, insurance, and travel documents.

Hvað er Evrópska stafræna auðkennisveskið?

Evrópska stafræna auðkennisveskið er stafrænt veski (snjallforrit) stutt af stjórnvöldum sem gerir íbúum ESB kleift að geyma og miðla staðfestum gögnum um persónuupplýsingar eins og persónuskilríkjum, prófskírteinum og ökuskírteinum — til að nýta sér þjónustu í öllum ríkjum ESB. Fyrirtæki og stofnanir geta einnig fengið fyrirtækjaveski til að staðfesta auðkenni sitt í viðskiptum milli fyrirtækja (B2B).

Þetta er framtak Framkvæmdastjórnar ESB í samstarfi við aðildarríki ESB.

Hér eru tíu grundvallaratriði sem öll fyrirtæki ættu að þekkja.

Staðan í dag

Innleiðing evrópsku stafrænu auðkennisveskjanna hefst í lok árs 2026. Frá og með seinni hluta árs 2027 munu kröfur um móttöku taka gildi fyrir ákveðna  þjónustuaðila í einka- og opinbera geiranum í skilgreindum tilvikum, þar á meðal í þjónustu þar sem krafist er sterkrar auðkenningar notenda eða lögboðinnar auðkenningar.

Fyrir eftirlitsskyldar atvinnugreinar eins og banka, fjármálaþjónustu, greiðslumiðlun og opinbera þjónustu gerir þetta fullkomna regluvörslu að forgangsmáli. Fyrirtæki ættu að meta hvar auðkennisstaðfesting, auðkenning, KYC/KYB og rafrænar undirskriftir í gegnum auðkennisveski gætu haft áhrif á ferli viðskiptavina þeirra.

Illustration of a person holding a padlock in front of a smartphone displaying a login screen with a password field and fingerprint icon.

Hvað geta notendur gert með evrópska stafræna auðkennisveskinu?

Evrópska stafræna auðkennisveskið gerir notendum kleift að:

  1. Skrá sig inn í þjónustu á öruggan hátt 
  2. Sanna persónuupplýsingar (t.d. aldur, þjóðerni) án þess að gefa upp fullt auðkenni sitt
  3. Undirrita skjöl rafrænt á hæsta öryggisstigi (QES stigi)
  4. Styðja við greiðslutengd tilvik, svo sem fyrir sterka auðkenningu, undirritun umboða og deilingu á staðfestum auðkennisþáttum
Illustration of the European Union digital identity framework showing trusted identity verification, privacy controls, and secure access to digital services.

Dæmi um notkunarmöguleika evrópsku auðkennisveskjanna fyrir fyrirtæki

    • Stofnun reikning samstundis: Notandi staðfestir auðkenni sitt, miðlar staðfestum gögnum á borð við staðfestingu á heimilisfangi og tekjum, og undirritar rafrænt til að stofna reikning - allt í gegnum evrópska stafræna auðkennisveskið á örfáum mínútum.
    • Lánveitingar þvert á landamæri: Þýskur notandi sækir um lán á Spáni. Bankinn fær aðgang að staðfestu auðkenni og lánshæfisupplýsingum úr veskinu, sem tryggir fylgni við staðbundnar reglur um KYC og dregur um leið úr áhættu á svikum.
    • Örugg rafræn umboð fyrir SEPA: Notaðu veskið til að gefa út og undirrita rafræn umboð vegna aðgangsstýringar fyrir beingreiðslur.
    • Skilvirkni í áreiðanleikakönnunum (KYC): Endurnýtanleg staðfest gögn geta dregið úr endurtekinni skjalasöfnun, handvirkri yfirferð og endurauðkenningu á öllum stigum í ferli viðskiptavinarins.
    • Áreiðanlegt greiðsluferli fyrir BNPL (Kauptu núna, borgaðu seinna): Notandi miðlar sannreyndu auðkenni og lánasögu úr veskinu; greiðsluveitandi metur greiðsluhæfi í rauntíma.
    • Rafræn nýskráning söluaðila: Greiðsluþjónustuveitendur geta samstundis staðfest forsvarsmenn og raunverulega eigendur (UBO) fyrirtækis með skilríkjum úr evrópska stafræna auðkennisveskinu.
    • Sterk auðkenning viðskiptavina (SCA): Aukin auðkenning við stærri færslur með notkun á evrópska stafræna auðkennisveskinu 
    • Bílaleiga án afgreiðsluborðs: Notandi staðfestir ökuskírteini og persónuskilríki fyrir fram í gegnum veskið. Bílalyklar eru gefnir út rafrænt eftir líffræðilega sannprófun.
    • Aðgangur að deilisamgöngum: Snjallforrit fyrir rafhlaupahjól eða deilibíla staðfesta aldur og auðkenni í gegnum veskið áður en farartæki eru tekin úr lás.
    • Samgöngupassar þvert á landamæri: Einstaklingur frá Austurríki, sem sækir vinnu eða nám yfir landamæri, notar þýska samgönguþjónustu með því að deila staðfestingu á búsetu og námsmannastöðu til að fá afsláttarkjör.
    • Rafræn nýskráning spilara á svipstundu: Staðfestu aldur og auðkenni spilara áður en þeim er veittur aðgangur að spilakerfum. Þannig er kröfum eftirlitsaðila mætt án langvinnra handvirkra athugana.
    • Reglufylgni þvert á landamæri: Vettvangar sem starfa í mörgum ESB-löndum geta nýskráð spilara með samræmdum auðkennisramma, sem dregur úr lagalegu flækjustigi.
    • Rafræn útgáfa tryggingaskírteina: taðfestu auðkenni þeirra sem sækja um tryggingu með notkun veskisins. Viðskiptavinir geta undirritað tryggingasamninga með fullgildri rafrænni undirskrift (QES) beint úr veskinu.
    • Staðfest gögn um heilsu og aksturssögu: Við gerð verðtilboða eða úrlausn tjónamála getur notandinn deilt staðfestum gögnum á borð við sjúkraskrár eða aksturssögu.
    • Nýskráning fyrirtækja (B2B): Staðfestu forsvarsmenn fyrirtækja og lögaðila samstundis þegar gengið er frá atvinnutryggingum.Ávinningur af evrópska stafræna veskinu fyrir fyrirtæki.

Kostir evrópska stafræna auðkennisveskisins fyrir fyrirtæki

  • Öryggi á pari við kröfur stjórnvalda

  • Notendavæn og hnökralaus samskipti

  • Óbreytanleg staðfest gögn

  • Fullgildar rafrænar undirskriftir

  • Persónuvernd og almenna persónuverndarreglugerðin (GDPR) í fyrirrúmi

  • Samhæfni þvert á landamæri

Fyrir fyrirtæki þýðir þetta

  • Auðveldari rekstur yfir landamæri

  • Minni hætta á svikum

  • Auðveldari reglufylgni við lög um áreiðanleikakannanir (KYC) og aðgerðir gegn peningaþvætti (AML)

Svona undirbýrðu fyrirtækið þitt fyrir innleiðingu á evrópska stafræna auðkennisveskinu

1. Gefðu út staðfest gögn í veskið

Signicat, sem er fullgildur traustþjónustuveitandi, aðstoðar fyrirtæki, opinberar stofnanir og útgefendur veskja við að gefa út staðfest gögn í hvaða stafræna auðkennisveski sem er, þar á meðal EUDI-auðkennisveskið. Staðfest gögn geta verið tekjustaðfesting, númer tryggingaskírteinis eða hvers kyns aðrar upplýsingar sem notandi býr yfir. Sýnt hefur verið fram á þessa virkni nýlega í samstarfi við norsk stjórnvöld sem hluta af NOBID tilraunaverkefninu.

2. Samþykktu auðkennisstaðfestingu og KYC/KYB úr veskinu

Staðfestu auðkenni notanda og aðra auðkennisþætti (svo sem aldur og heimilisfang) í gegnum EUDI-auðkennisveskið, sem snurðulausa viðbót við auðkenningu með rafrænum skilríkjum eða sannprófun skilríkja. Allt frá einföldum nýskráningum til flókinna KYC-ferla, með því að styðja bæði núverandi og framtíðar aðferðir tryggir þú hnökralaus umskipti yfir í framtíð sem byggir á evrópska stafræna auðkennisveskinu.

3. Virkjaðu innskráningu og auðkenningu í gegnum auðkennisveskið

Að bæta við valmöguleikanum „Innskráning með evrópska stafræna veskinu“ við þjónustu þína, býður upp á auðkenningarleið sem er í senn örugg (sterk auðkenning viðskiptavina / SCA) og snurðulaus. Auk þess hjálpar það eftirlitsskyldum atvinnugreinum að uppfylla reglugerðir sem kveða á um lögboðna viðurkenningu á veskinu til auðkenningar.

4. Bættu við rafrænni undirskrift í gegnum veskið

Að bæta evrópska stafræna auðkennisveskinu við samhliða rafrænum skilríkjum og öðrum núverandi rafrænum undirskriftaraðferðum gerir pappírslausa undirritun samninga mögulega. Undirskriftir studdar af veskinu geta hjálpað til við að draga úr handvirkri úrvinnslu, stytta afgreiðslutíma samninga og tryggt lagalega gildar rafrænar undirskriftir þvert á ESB, þar á meðal fullgildar rafrænar undirskriftir þar sem viðeigandi fullgildrar traustþjónustu er krafist. 

Illustration of a person handing a document to another person through a computer screen.

Af hverju að velja Signicat fyrir innleiðingu á evrópska stafræna auðkennisveskinu

Signicat er fullgildur traustþjónustuveitandi og á traustlista ESB yfir viðurkennda aðila. Fyrirtækið tekur þátt í þremur EUDI Large Scale Pilot-verkefnum, gegnir virku hlutverki í mótun evrópskra staðla og býr yfir víðtækri reynslu af því að bjóða þjónustu á bankastigi sem uppfyllir ströngustu kröfur Evrópu um öryggi og reglufylgni.

Sem leiðandi veitandi stafrænna auðkennislausna í Evrópu er Signicat nú að samþætta lausnir byggðar á auðkennisveskjum við núverandi lausnaframboð sitt. Þetta gerir núverandi lausnir ekki aðeins framtíðaröruggar, heldur tryggir einnig stigvaxandi og snurðulaus umskipti yfir í lausnir sem byggja á auðkennisveskjum.

Algengar spurningar fyrirtækja um evrópska stafræna auðkennisveskið

  • Nei. Evrópska stafræna auðkennisveskið verður ekki lögboðið fyrir öll fyrirtæki fyrir árið 2027. Hins vegar munu tilteknir þjónustuveitendur í opinbera geiranum og einkageiranum þurfa að búa sig undir að samþykkja veskið í skilgreindum tilvikum, sérstaklega þar sem sterk auðkenning notenda eða lögboðin auðkenning er hluti af þjónustunni.

  • Núverandi landsbundin rafræn skilríki eru vanalega tengd við stafræna auðkennisinnviði eins lands. Evrópska stafræna veskið er hannað til að styðja við auðkenni yfir landamæri, miðlun upplýsinga, auðkenningu og undirritun í gegnum sameiginlegan ramma innan ESB. 

  • Já, en það þarf ekki að koma í stað þeirra. Evrópska stafræna veskið getur virkað sem áreiðanlegur viðbótaruppruni auðkennisgagna og annarra auðkennisþátta samhliða núverandi rafrænum skilríkjum, staðfestingu persónuskilríkja, uppflettingum í opinberum skrám og áhættumiðuðum KYC/AML-ferlum.

  • Það getur dregið úr kostnaði í ákveðnum ferlum með því að fækka endurteknum skjalaupphleðslum, handvirkri yfirferð og endurauðkenningu. Áhrifin ráðast af viðkomandi notkunartilviki, áhættulíkani, reglugerðarkröfum og útbreiðslu veskisins meðal viðskiptavina.

  • Já. Veskið getur stutt við ferla fyrir rafrænar undirskriftir. Fyrir fullgildar rafrænar undirskriftir verður undirritunarferlið að notast við viðeigandi fullgilda traustþjónustu og uppfylla kröfur eIDAS reglugerðarinnar.