Slepptu flækjustiginu við KYC/KYB
Sjálfvirk nýskráning, snjallari reglufylgni og öflugar svikavarnir.
Signicat Mint er sérsniðið að þörfum stærri fyrirtækja og hjálpar til við að einfalda KYC/KYB-ferla, tryggja að farið sé eftir ítrustu kröfum og lágmarka handavinnu, auk þess að gera nýskráningu þvert á landamæri hraðari og öruggari.
Óskaðu eftir kynningu
Losnaðu við vesenið sem fylgir handvirkum KYC/KYB ferlum
Glímir þú við úrelt og handvirk vinnuferli sem tefja nýskráningu og gera fyrirtækið berskjaldað fyrir svikum? KYC og KYB eru nauðsynlegir ferlar til að staðfesta auðkenni viðskiptavina og fyrirtækja.
Með því að straumlínulaga þessa ferla má spara tíma, auka öryggi og bæta upplifunina við nýskráningu.
-
Handvirk auðkenning og staðfesting skjala sóar dýrmætum tíma hjá þínu teymi.
-
Það getur verið yfirþyrmandi að fylgja ólíkum kröfum um reglufylgni þvert á landamæri.
-
Ófullnægjandi ferli gera fyrirtækið berskjaldað fyrir svikum og óæskilegum aðilum.
-
Hæg og flókin nýskráningarferli verða til þess að viðskiptavinir leiti annað.
–Þetta þarf ekki að vera svona erfitt!
Einfaldaðu KYC/KYB ferlið með Signicat
Tryggðu hraðari framþróun og svikalaus viðskipti með heildstæðri reglufylgni sem þú getur treyst.
-
Örugg alþjóðleg nýskráning sem uppfyllir allar kröfur
Starfaðu af öryggi á fleiri mörkuðum með því að uppfylla staðbundnar reglur á einfaldan hátt, hvort sem það er í Noregi, Svíþjóð, Danmörku, Hollandi, Þýskalandi eða víðar.
-
Ítarleg áhættugreining og dýpri innsýn
Lágmarkaðu áhættu með því að sía út vafasama umsækjendur strax í byrjun. Með ítarlegu áhættumati tryggir þú örugga nýskráningu fyrir alla trausta notendur.
-
Snurðulaus auðkenning
Nýttu leiðandi lausnir á markaðnum, á borð við rafræn skilríki, skönnun skjala og lífkenna staðfestingu, til að staðfesta auðkenni á einfaldan hátt.
-
Sjálfvirkir og sérsniðnir verkferlar
Láttu handvirka yfirferð heyra sögunni til með fullstafrænu ferli sem aðlagast sérstökum kröfum um reglufylgni og hámarkar upplifun viðskiptavina.
-
Hröð og skalanleg nýskráning
Nýskráðu viðskiptavini á örfáum sekúndum í stað margra daga með lausnum sem vaxa í takt við fyrirtækið þegar sótt er inn á nýja markaði.
-
Viðvarandi vöktun
Tryggðu viðvarandi reglufylgni með stöðugri sannprófun gagna, sjálfvirkum viðvörunum og áhættumati til að fyrirbyggja svik og uppfylla kröfur um peningaþvættisvarnir (AML).
Stutt yfirlit yfir KYC/KYB lausnirnar okkar
Okkar nálgun að reglufylgni
Hjá Signicat er reglufylgni ekki bara atriði sem þarf að haka við. Hún er tækifæri til að byggja upp traust, auka skilvirkni og styðja við vöxt fyrirtækisins. Lausnirnar okkar eru sérsniðnar að þeim regluverkskröfum sem gilda á Norðurlöndum og hjálpa þér að draga úr flækjustigi svo þú getir einbeitt þér að vexti.
Með áratuga reynslu af því að styðja fyrirtæki á borð við þitt þekkjum við regluverkið vel og bjóðum sérsniðnar lausnir sem laga sig að þinni atvinnugrein, lögsögu og viðskiptamódeli.